Öryggisgalli kreditkorta

Einn helsti öryggisgalli kreditkorta felst í notkun þeirra á internetinu. Óprútnir aðilar eiga nokkuð auðvelt með að komast yfir kreditkorta upplýsingar sem þarf til úttektar af kortunum, þ.e. reikningsnúmer, útgáfudagsetningu og CSC öryggisnúmer. Þetta er helsta ástæða þess að mjög oft loka VISA og MasterCard á Íslandi fyrir erlendar úttektir viðskiptavina þegar færslur koma skyndilega frá öðrum löndum en Íslandi..

Oft er það starfsfólk verslana og veitingastaða, sem tekur við kreditkortum viðskiptavina, sem afritar þessar upplýsingar og notar síðar til að svíkja út vörur á internetinu. Einnig er nokkuð algengt að “hakkarar” komast inn í gagnagrunna stórra fyrirtækja, sem halda úti netverslunum og ná þaðan þessum sömu upplýsingum um kreditkort viðskiptavinanna. Því næst eru þessar upplýsingar notaðar til vörusvika eða úttekta gegnum internetið.

Öryggisgallinn felst sem sagt í því að allar upplýsingar til að taka út af kreditkortum eru á kreditkortunum sjálfum. Ef fólk notar kreditkort á internetinu afhendir það sjálft allar upplýsingar til kaupmanns, til að hann geti tekið út af reikning viðkomandi.

Rafmyntir virka allt öðruvísi en kreditkort. Viðskiptavinur sem notar rafmynt ýtir fé af sýnu reikningsnúmeri yfir á reikningsnúmer kaupmanns án þess að gefa upp neinar öryggisupplýsingar. 

Fylgdu okkur á Facbook: